...
Ekki nokkur séns að finna fyrirsögn á þessa færslu, snilld og taumlaus gleði koma helst upp í hugann. Unnið er að því að safna saman myndum sem munu birtast hér næstu daga.
Þangað til... náið úr ykkur þynkunni.
Ekki nokkur séns að finna fyrirsögn á þessa færslu, snilld og taumlaus gleði koma helst upp í hugann. Unnið er að því að safna saman myndum sem munu birtast hér næstu daga.
Þangað til... náið úr ykkur þynkunni.
Mæting: 14:00 á planinu hjá Menntaskólanum á Akureyri
Kostnaður: 4500 krónur á mann.
Leggist inn á 0101-05-271355 kt:101182-4959
Búnaður:aukaföt frá toppi til táar, s.s. líka aukanærföt, nema þið ætlið ykkur að vera nærfatalaus um
kvöldið sem er alveg frjálst, pinnahælapíur geta svo haft með sér aukaskó, ef
þær vilja hæla sig upp fyrir kvöldið
- handklæði og sundföt
- haldapoka
- svo gæti komið sér vel að taka með teppi ef kalt verður í veðri, það er ekki nauðsynlegt, en gæti komið sér vel :)
- svo þurfiði að taka með ykkur þau drykkjarföng fyrir daginn
Markmið: að skemmta sér vel
Þeir sem ekki hafa í hyggju að skemmta sér eru varaðir við að mæta, þeim gæti reynst orðið erfitt að sleppa við skemmtunina/gleðina sem mun ríkja í ferðinni.
Hér er hægt að panta miða á afmælishátíð MA stúdenta sem fram fer í Íþróttahöllinni á Akureyri 16. júní næstkomandi. Athugið að láta vita fyrir 10. júní ef hætt er við pöntunina. Hægt er að senda tölvupóst á bautinn@bautinn.is eða hringja í 462-1818 til að afpanta miða. Ef ekki er látið vita í tæka tíð verður rukkað fyrir miðana.
Miðarnir verða seldir í Höllinni 15. og 16. júní frá 13:00 til 17:00.
Þeir sem óska eftir grænmetisrétti í stað þess sem boðið er upp á af hefðbundna matseðlinum, eða hafa aðrar sérstakar óskir, t.d. vegna ofnæmis, eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við Guðmund Karl á Bautanum í síma 462-1818 eða 897-3818, eða með tölvupósti á netfangið gummi@bautinn.is.
MATSEÐILL
Fordrykkur
Kvöldroðinn
Forréttur - Perlur hafsins
Heitreyktur silungur með mangósósu,
hvítlauksristaður humarhali og
glóðaður skötuselur með kampavínsrjóma
Aðalréttur - Upp til fjalla
Lambaframhryggur í bjarma Norðurljósanna.
Ofnsteiktur lambaframhryggur kryddaður íslenskum jurtum borinn
fram með hasselback-kartöflum og fjallagrasasósu.
Desert - Fantasía
Súkkulaðiterta, vanillís, ávextir,
rjómatoppur og hindberjasósa